Hello people!!
Ég sé að það er komin föst dagsetning; Föstudagurinn 29.júní,
víííí. Þá er bara að skrifa daginn á harða diskinn í höfðinu á
ykkur eða í svokallaða dagbók. Þá er það spurning með sal, hvaða
bland við eigum að kaupa, hvort það eigi að kaupa, panta einhvern
tilbúin mat. T.d er Nóatún með svaka góð verð á ostapinnum, fajita
rúllum og Suchi. 50 stk suchi á 4500 kr þarf að panta með 3 dögum
fyrirvara. Með suchinu fylgir wasabi, engifer, soja og pinnar.
Ostabakkarnir eru frá 2500 kr alveg fult á bakkanum og veit ekki
hvað hitt kostar, eitthvað svipað. Svo er hægt að kaupa góða osta,
kex, brauð-hvítlauksbrauð hjá Jóa fél., paprikur, vínber o.s.frv.
Getum líka keypt einhverja kassa af víni t.d kostar rauðvínskassi 3
l. c.a 3500-4500 kr og sama um hvítvínið. Getum reiknað út að hver
fái 2-3 glös. Enn í einni flösku er c.a 5-6 glös. Og í kassa
eru c.a 4 flöskur sem er þá 24 glös. Er það ekki rétt hjá mér???
Svo getum við gert einhverja djúsí bollu, veit um 2 mjög góðar og
ferskar, ekki of sætar. Ég held að við ættum að geta keypt í bollu
og svo einhverja kassa, smá mat og snakk og sal/skreytingar fyrir
70.000-100.000 kr. Þurfum að reikna þetta betur út allt saman, þá
nákvæmara. Svo er það þema mál, það eru komnar hugmyndir um: .KK og
KvK svissi um hlutverk, kvikmyndastjörnuþemi, svart/hvítt þemi, 95
þemi, glansþemi/glimmer..... og veit ekki meira. En svo er
til; Gellu og gæja þemi=þá mjög ýkt, glamúr þemi, gala þemi,
....... Komiði með hugmyndir folks!!!!!!!!!!!! Ekki má gleyma
drykkjuleikjunum
Ég veit um nokkra (einn danskur), finni þið
einhverja! Verðum að finna DJ, veit um einn sem kostar 20.000 var í
brúðkaupinu mínu og spilaði allt, mikið bland/ bæði
Íslenskt-stuðmenn og fleira, dans, disko, R&B og os.frv, viti
þið um einhverja?? Ég get tjekkað á honum, hvað segiði um
það??Reyndar getur líka einhver/einhverjir sest niður
eitt kvöld og raðar niður í tölvuna sína fult af lögum
og við tengt það svo við hátalara í salnum, það kostar
ekkert!! (ég á fult af söfnuðum lögum í minni alveg frá Britney
sp., Justin, Outkast, diskó, 85 o.s.frv. Get brent það og aðrir
gert það sama. En þá þurfum við að stjórna því sjálf um kvöldið.
Svo er spurning hvort einhver úr nefndinni velji flottasta
outfit kvöldsins og, sá fái verðlaun?? Svo komiði með hugmyndir
fyrir skemmtilegt kvöld. Er að reyna að finna eitthvað sniðugt sem
samrýmir okkur, þannig að allir séu saman allavega í einhvern tíma.
Svo bara dansa og tjútta................. Er ekki spurning um að
halda næsta fund sem fyrst til að fara yfir hluti, ákveða þema,
reikna út c.a kostnað, hringja í fólk sem veit ekki af þessu,
ákveða tíma o.s.frv, Nóg í bili, over and out
p.s frekar sorglegt hvað það eru fáir sem skipta sér af síðunni,
og það vantar alveg upp á karlpeninginn... Koma svo strákar ekki
vera hræddir við bítum ekki tihihih eða hvað hummmmm..........